4. liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 2.febrúar sl. Ishmael David mætir til fundarins og kynnir tillögur starfshóps að samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu. Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna og samþykkir fyrir sitt leyti tillögur um samræmda flokkun við heimili og vísar skýrslunni til afgreiðslu bæjarráðs.
Svar
Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi yfirlýsingu og veitir bæjarstjóra fullt og ótakmarkað umboð til undirritunar hennar fyrir hönd sveitarfélagsins. Vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.