Lækjargata 16 fellur undir lög um menningarminjar. Með erindinu þarf að fylgja umsögn Minjastofnunar Íslands vegna þeirra breytinga sem óskað er eftir. Jafnframt skal leggja erindið fyrir skipulags- og byggingarráð í samræmi við greinagerð deiliskipulagsins Lækjargata - Hamar. Erindið verður lagt fyrir ráðið þegar umsögn Minjastofnunar Íslands hefur borist embættinu.