Fyrirspurn
4.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 3. febrúar sl.
Lagt fram erindi frá Gröfu og Grjót ehf. þar sem óskað er eftir vilyrði fyrir úthlutun á lóðunum Tunguhellu 1-7, seinni hluti 3.áfanga að Hellnahrauni.
Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti og að vilyrði sé veitt til tveggja ára í samræmi við fyrirliggjandi erindi. Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.