Fyrirspurn
Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar þann 16. febrúar 2022 var samþykkt að grenndarkynna erindi Smára Björnssonar fh. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Um er að ræða beytingu á byggingarreit til norðurs, stækkun um 1m, á öllum lóðum. Á Tinnuskarð 20 og 22 þá færist byggingarreitur um 1m til suðurs. Hús verða parhús á tveimur hæðum og bundin byggingarlína hverfur og hámrksbyggingarmagn verður 400 fm. Bílastæðum fjölgar úr tveimur í fjögur á lóð. Erindið var grenndarkynnt tímabilið 18.2-20.3.2022. Engar athugasemdir bárust.