Lögð fram umsókn Flatahrauns 23 hf. um atvinnuhúsalóðina nr. 8 við Dofrahellu.
Svar
Alls bárust tíu umsóknir um lóðina og dró fulltrúi sýslumanns úr umsóknum. Dregin var út umsókn Flatahrauns ehf. og til vara var dregin út umsókn KB Verks ehf. Bæjarráð leggur því til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til Flatahrauns ehf.