Íshella 2, breyting á deiliskipulagi
Íshella 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1897
26. október, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
8.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 20.október sl. Bæjarráð Hafnarfjarðar í umboði bæjarstjórnar samþykkti á fundi sínum þann 28.07.2022 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Íshella 2 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Hellnahrauns. Í deiliskipulagsbreytingunni felst stækkun á skilgreindum byggingarreit, hækkun vegghæðar og að fest sé í skipulagi núverandi aðkoma inn á lóðina. Tillagan var auglýst 18.8.-29.9.2022. Ábending barst frá Veitum. Lagður fram uppfærður uppdráttur. Skipulags- og byggingarráð samþykkir uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hellnahrauns 1. áfanga vegna Íshellu 2 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 172784 → skrá.is
Hnitnúmer: 10059712