Fyrirspurn
14.liður úr fundargerð SBH frá 29.apríl sl.
Lögð fram tillaga Formu ehf að deiliskipulagi svæðis við Hamranes og Vatnshlíðarhnúk dags. 23.04.2010 ásamt skilmálum og skýringaruppdráttum.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna tillögu að breytingu á aðalskipulagi hvað varðar mörk íbúðarsvæðis í Vatnshlíð.
Tillaga til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hafin verði vinna við breytingu á aðalskipulagi hvað varðar mörk íbúðarsvæðis í Vatnshlíð."