Eldra hús var rifið og endurbyggt, byggingarleyfi samþykkt 2005. Fasteignaauglýsing hefur birst þar sem tvær íbúðir eru sagðar í húsinu þrátt fyrir að aðeins liggi fyrir samþykki fyrir einni.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi beinir því til eiganda að leiðrétta umrædda auglýsingu eða sækja um breytingu á byggingarleyfi að öðrum kosti.