Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að athuga ferli málsins. Einnig felur skipulags- og byggingarráð skipulags- og byggingarsviði að hefja viðræður við skipulagsyfirvöld í Garðabæ um að skipta deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum í tvo hluta, þannig að sá hluti sem er innan marka Hafnarfjarðar verði alfarið í forsjá Hafnarfjarðar og sá hluti sem er innan marka Garðabæjar verði alfarið í forsjá Garðabæjar.