Skarðshlíð (áður Vellir 7. áfangi), deiliskipulagsvinna.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 595
12. apríl, 2016
Annað
1
Fyrirspurn
Lagðar fram athugasemdir sem borist hafa vegna auglýsingar á breyttu deiliskipulagi.
Lögð fram drög að svörum skipulagsfulltrúa við athugasemdum Meistafélags iðnaðarmanna o.fl. við skipulagsskilmála.
Farið yfir breytingar á skilmálum þar sem komið er til móts við hluta athugasemda.
Lögð fram eftirfarandi breytingartillaga fulltrúa Bjartrar framtíðar við skipulagsskilmála: " Lagt er til að fjöleignarhúsin F13, F17, F22 og F24 verði áfram með skilyrðum um timburklæðningar."
Svar

Skipulags- og byggingarráð vísar athugasemd lóðarhafa Bergskarðs 5 varðandi breytingar á lóðinni til skoðunar hjá bæjarstjóra. Aðrar athusemdir falla undir almennar athugasemdir varðandi skilmála.

Athugasemdum HS Veitna er vísað til úrlausnar hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulagsfulltrúa við ahugasemdum og gerir þau að sínum.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða breytingartillögu við skilmála deiliskipulagsins með 3 atkvæðum fulltrúa Bjartra framtíðar, VG og Samfylkingar gegn 1 atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Karólína Helga Símonardóttir situr hjá.

Ólafur Ingi Tómasson leggur fram eftirfareandi bókun:
"Ydda arkitektar leggja til í greinargerð og skipulagsskilmálum eftirfarandi fyrir þá reiti sem fulltrúi Bjartar Framtíðar leggur til breytingar á.

„Efni og litir
Yfirborðsfrágangur fjöleignarhúss F5 skal vera með tré eða steinað í gul/brúnni
steiningu.“
Fyrirséð er að timburklæðing kallar aukið viðhald og hleypir íbúðarkostnaði upp. Samkvæmt tillögu Ydda arkitekta, höfunda breytingar á deiliskipulagi Skarðhlíðar er valkvætt í skilmálum hvort notast er við timbur eða steiningu og leggur fulltrúi Sjálfstæðisflokks til að það ákvæði standi óbreytt."

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi deildiskipulagstillögu ásamt skilmálum með áorðnum breytingum fyrir sitt leyti og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulag 1. áfanga Skarðshlíðar útgáfa 04 ásamt greinargerð og málinu verði lokið samkvæmt 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Skipulags- og byggingarráð samþykkti eftirfarandi bókun:
"Tillaga að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar sem nú liggur fyrir er byggð á vist- og fjölskylduvænu umhverfi þar sem byggingar og garðar njóta sín á móti suðri með fjölbreyttum útisvæðum. Metnaðarfullt skipulag og skilmálar mun skila sér í auknum lífsgæðum íbúa og hefur alla burði til að Skarðshlíðin verði eitt eftirsóttasta hverfi höfuðborgarsvæðisins."

Gert var stutt fundarhlé kl. 09:30