Skipulags- og byggingarráð samþykkir að fresta aðalskipulagi svæðisins enn um 4 ár skv. heimild í 33. grein skipulagslaga nr. 123/2010, og vísar málinu að öðru leyti til endurskoðunar Aðalskipulags Hafnarfjarðar sem Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti 30.06.10 að hafin skyldi vinna við. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að fresta hluta Aðalskipulags Hafnarfjarðar 2005 - 2025, svæði vestan Straumsvíkur, enn um 4 ár skv. heimild í 33. grein skipulagslaga nr. 123/2010."