Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að setja svalir á suðvesturhlið 1., 2. og 3. hæðar ásamt samþykki fyrir áður gerðri stækkun íbúðar 2. hæðar um hluta af 3. hæð og fyrir stiga á milli 2. og 3. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 56 við Bergstaðastræti.
Erindið var grenndarkynnt frá 27. júlí til 24. ágúst 2005. Athugasemdir bárust.
Samþykki meðeigenda ódags. og samþykki sumra eigenda Bergstaðastrætis 54 dags. í júlí 2005 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.700 + 5.700