Sótt er um leyfi til að breyta parhúsi í einbýlishús á lóð nr. 43 við Skildinganes. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 25. mars 2010 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. apríl 2010. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Skilyrt að skila skal fullgildu samrunaskjali til byggingarfulltrúa áður en byggingarleyfi verður gefið út.