Sótt er um leyfi fyrir áður viðbyggðri kæligeymslu við vesturvegg á atvinnuhúsinu á lóð nr. 5A við Bíldshöfða. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. janúar 2010 og umsögn skipulagsstjóra dags. 7. janúar 2010 fylgja erindinu. Stækkun: 6,3 ferm og 14,1 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 1.086
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Með vísan til bókunar skipulagsstjóra skal umsækjandi leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem síðar verður grenndarkynnt.