Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi kjallara og 1. hæðar þar sem veitingasal er breytt í verslun og skrifstofurými breytt í veitingasal með kaffiveitingum í fl. II í húsi á lóð nr. 23 við Laugaveg. Gjald kr. 7.700 + 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.