Byggingarfulltrúi leggur til að landspilda og lóð við sunnanverðan Flugvallarveg verði tölusett sem hér segir: Óafmörkuð landspilda með landnr. 107464, staðgr. 1.75-.-98. Á spildunni eru þrír skráðir mh. 01,02 og 03, með fastanr. 203-2801 í eigu Bílaleigu Flugleiða ehf. Lagt er til að spildan sem er 3.100 m2, samkvæmt lauslegu mati verði tölusett nr. 5 við Flugvallarveg.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Bókun byggingarfulltrúa: Í samþykktinni er ekki falin nein stærðarafmörkum né yfirlýsing um lóðarréttindi Ríkissjóðs. En spildan er í eigu Reykjavíkurborgar.