Sótt er um endurnýjun byggingarleyfis BN032624, samþ. 30. maí 2006, um að setja þakhýsi fyrir loftræsibúnað á skrifstofubyggingar Flugleiða á lóð við Flugvallarveg. Stærð 10 ferm., 20 rúmm. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.