Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN034774 dags. 24.10. 2006, sem felst í að setja kvisti á þak og hækka þak yfir stiga í húsinu á lóð nr. 68A við Hverfisgötu. Stærðir stækkun: 7,2 ferm., 41,9 rúmm. Samtals eftir stækkun 206,9 ferm., 651,8 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 3.226
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.