Sótt er um leyfi til breytinga innhúss, fyrir tilfærslum á rýmum, fjölgun gistiherbergja, nýjum neyðarútgangi á suðurgafli og nýju anddyri í norður í húsinu á lóð nr. 18 við Laugaveg. Stækkun: 4,5 ferm., 16,6 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 1.278
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.