Sótt er um leyfi til að byggja svalaskýli úr stálstyrktum prófílum með tvöföldu einangrunargleri og einangrandi plötum á milli svala á 1. og 2. hæð á íbúðarhúsi á lóð nr. 8 við Hvammsgerði. Meðfylgjandi er grenndarsamþykki meðeigenda á lóð og næstu nágranna dags. des. 2009 og jan. 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. mars 2010. Stærðir 11,2 ferm., 29,7 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 2.287
Svar
Synjað. Með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. mars 2010 sbr. bréf dags. 8. mars og með vísan til gr. 102,1 í byggingarreglugerð er ekki um svalaskýli að ræða, heldur svalalokun.