Sótt er um leyfi til að breyta þaki nýsamþykkts bílskúrs úr flötu steyptu í létt einhalla, sjá erindi BN040275 og BN040223 dags. 13. október 2009, við parhúsið á lóð nr. 37 við Akurgerði. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 15. mars 2010. Stækkun 17,1 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 1.317
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.