Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja við neðri hæð um 19,4 ferm. og byggja bílskúr um 28 ferm. úr tré klætt með bárujárni við fjölbýlishúsið á lóð nr. 76 við Einarsnes. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. mars 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 12. mars 2010.
Svar
Jákvætt. Með vísan til útskriftar skipulagsstjóra en þar kemur m.a. fram að breyta þarf deiliskipulagi sem grenndarkynnt verður ef berst. Sjá að öðru leyti athugasemdir skipulagsstjóra í umsögn hans frá 12. mars 2010 og á fyrirspurnarblaði.