Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II fyrir 92 gesti á 1. og 2. hæð og setja tvo nýja glugga á norðausturgafl verbúðar á lóð nr. 7C við Geirsgötu. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Vakin er athygli á vöntun sorpgeymslu.