Sótt er um leyfi til að breyta anddyri og innra skipulagi í nýsamþykktu erindi BN039922 varðandi einbýlishús í landi Fitjakots. Stærðir stækkun 18,9 ferm., 84 rúmm. Samtals eftir stækkun 375,3 ferm., 969.5 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 6.468
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.