Spurt er hvort leyfi fengist til að hækka þak og byggja kvist á húsið á lóð nr. 7 við Bugðulæk. Bréf frá eiganda dags. 29. mars 2010 fylgdi erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. apríl 2010.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi, sem taki mið af umsögn skipulagsstjóra.