Sótt er um leyfi til að innrétta veitinga- og samkomusal í flokki II á 1. og 2. hæð í atvinnuhúsnæðinu nr. 7B á lóð nr. 3A til 7C við Geirsgötu. Umsögn burðavirkishönnuðar dags. 3. maí 2010. Tölvupóstur frá hönnuð dags. 11. maí 2010 Gjald kr. 7.700 + 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Vakin er athygli á athugasemdum heilbrigðiseftirlits vegna sorphirðu.