Sótt er um leyfi til að breyta hæð á gluggum á austur- og vesturgöflum, breyta svalahandriði á húsi nr. 6 og til að fá aðskilið byggingarleyfi fyrir parhúsið á lóð nr. 6-8 við Búðavað. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 27. apríl 2010. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.