Spurt er hvort leyft yrði að útbúa sólpall ofaná þak að Bragagötu til nota fyrir íbúð á 2. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 52 við Bergstaðastræti. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. apríl 2010 fylgir erindinu.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi samþykki meðeigenda og aðliggjandi lóða sé um það að ræða.