Sótt er um leyfi til að innrétta veitingaverslun í flokki 1 sem á að selja heilsufæði með minniháttar eldun með lífrænt ræktuð matvæli í húsinu á lóð nr. 17 við Síðumúla. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Vakin er athygli á bókun heilbrigðiseftirlit vegna sorphirðu.