Spurt er hvort leyfi fengist til að koma fyrir gróðurhúsi sem verður staðsett á horni lóðar nr. 74 sem liggur að lóðum nr. 68 og 72 við Dalhús. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. maí 2010 fylgir erindinu.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi, en áður verður fyrirspyrjandi að vinna á eigin kostnað breytingu á deiliskipulagi sem grenndarkynnt verður.