Spurt er hvort leyft yrði að innrétta frumkvöðlasetur, tímabundið til ársloka, á efri hæð atvinnuhússins Bakkaskemmu á lóð nr. 16 við Grandagarð. Erindi fylgir leigusamningur dags. 21. janúar 2010 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. maí 2010.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Vísað er til athugasemda eldvarnaeftirlits á fyrirspurnarblaði. Sýna verður fram á að kröfum eldvarnaeftirlits sé fullnægt.