Sótt er um leyfi til að breyta núverandi bílskúr í verkstæði með snyrtingu og eldhúskrók og geymslu fyrir rafbíl, að koma fyrir heitum potti og byggja lóðarvegg og tröppur frá svölum 1. hæðar við tvíbýlishúsið á lóð nr. 11 við Hávallagötu. Málinu fylgir bréf umsækjenda dags. 18. maí 2010. Gjald kr. 7.700 + 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.