Spurt er hvort leyfi fengist til að stækka 4. hæð og fjölga íbúðum úr 7 íbúðum í 9 íbúðir í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 86-94 við Laugaveg. Bréf frá eiganda dags. 25. maí 2010 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. júní 2010 og umsögn skipulagsstjóra dags.9. júní 2010.
Svar
Nei. Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra en þó er ekki gerð athugasemd við fjölgun íbúða innan núverandi byggingarmagns, enda uppfylli íbúðir ákvæði byggingarreglugerðar um að geta staðið sem sjálfstæðar einingar.