viðbygging
Brekkustígur 4A 01.13.411.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 13 árum síðan.
Málsaðilar
María Jónsdóttir
Gunnar Helgi Kristinsson
Byggingarfulltrúi nr. 602
7. september, 2010
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka steinsteypt einbýlishús með því að byggja viðbyggingu og svalir á bakhlið og hækka gafla og byggja "Mansard" þak á einbýlishúsið á lóð nr. 4A við Brekkustíg.
Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 13. júní 2010, bréf sömu til Borgarverkfræðings dags. 2. sept. 1999, ásamt umsögn skipulagsins dags. 4. mars. Einnig lóðaleigusamningur innfærður til þinglýsingar 7.7.2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 3. sept. 2010. Kynning stóð yfir frá 28. júlí 2010 til og með 26. ágúst 2010. Engar athugasemdir bárust.
Stærðir fyrir stækkun: 111,1 ferm., 447,2 rúmm.
Stækkun: 74,4 ferm., 118,2 rúmm.
Stærðir eftir stækkun: 185,8 ferm., 565,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 9.101
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100321 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007879