Sótt er um leyfi til að setja handrið á útivistarbryggjur austan lóðar Sjóminjasafns á lóð nr. 8 við Grandagarð og meðfram uppsátri Gullborgar í "Daníelsslipp". Meðfylgjandi er bréf Faxaflóahafna dags. 26. maí 2010 og grunnmyndir og sérhlutamyndir af handriðum
Svar
Bókun byggingarfulltrúa. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við frágang og uppsetningu handriða á svæðinu. Fyrirhuguð handrið eru í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar nr. 441/1998. Svæðið er hafnarsvæði utan skilgreindrar lóðar.