Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara og gerð tveggja bílastæða á lóð, sbr. fyrirspurn BN041467, íbúðarhússins á lóð nr. 26 við Nökkvavog. Ljósrit úr lýsingabók og íbúðarskoðun dags. 7. maí 2010 fylgir. Gjald kr. 7.700
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.