Sótt er um leyfi til að byggja svalir að mestu leyti úr járni utan við geymsluglugga sem sagað verður niður úr á 2. hæð í íbúðarhúsi á lóð nr. 5 við Þverholt. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 11. júní 2010. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.