Sótt er um leyfi til breytinga á erindi BN037642, sem felast í að fjölga íbúðum úr þremur í fimm, fjölga svölum og fækka útitröppum í fjölbýlishúsi á lóð nr. 16 við Bergstaðastræti. Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. júlí 2010 fylgir erindinu. Gjald kr. 7.700 + 7.700
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Vakin er athygli á að umsagnir Húsafriðunarnefndar og Minjasafns Reykjavíkur vantar vegna útlitsbreytinga á húsinu.