Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna eignaskiptasamnings þar sem gerð er grein fyrir áður gerðri ósamþykkri íbúð í kjallara í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 25 við Lokastíg. Fyrirspurn BN040898 fylgir erindinu dags. 12. jan. 2010 Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.