Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna eignaskiptasamnings á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 47 við Öldugötu. Samþykki meðeigenda dags. 22. ágúst. 2010. Eignaskiptasamningur dags. 30. mars 1994. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.