Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 3. hæð (rishæð) inndregnar í þak á steyptri plötu fjölbýlishússins á lóð nr. 5 við Skaftahlíð. Meðfylgjandi á teikningu er samþykki meðeigenda og nágranna á nr. 3. Gjald kr. 7.700
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar dags. 13. september 2010.