Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna eignaskiptasamnings af íbúðarhúsinu sem stendur á lóð nr. 2 við Smáragötu. Meðfylgjandi er fylgiskjal arkitekts með skýringum dags. 14.9. 2010 Gjald kr. 7.700 + 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.