Sótt er um leyfi til að skipta eignarhluta 0202 í tvo eignahluta sem verða í 0202 og 0203 og að koma fyrir aðstöðu fyrir starfsmenn, ræstingu og salerni í rými 0203 í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 37 við Stórhöfða. Samþykki meðeigenda fylgir dags. 11. okt. 2010. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.