Sótt er um leyfi til að skilgreina geymslu/þvottahússkúr mhl. 02, sbr. BN038176, sem vinnustofu og séreign á lóð nr. 2 við Hólatorg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 29. október 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 27. október 2010. Gjald kr. 7.700
Svar
Frestað. Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra eru ekki gerðar athugasemdir við séreignarhald á mhl. 02. Þinglýsa skal kvöð sbr. umsögn skipulagsstjóra, fyrir samþykkt málsins. Að öðru leyti er vísað til athugasemda á umsóknarblaði.