Ofanritaður óskar eftir að eign hans, þ.e. 3.789 m2 úr landi Móavíkur , landnúmer 125732, verði sameinaðir landi Krummavíkur ehf., landnúmer 125725, enda liggja spildurnar saman og eru í eigu sama aðila. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 5. nóvember 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn lögfræði- og stjórnsýslu.
Svar
Frestað. Til þess að unnt sé að afgreiða málið skal umsækjandi leggja fram uppdrátt sem sýnir staðsetningu spildnanna, landnúmer og stærðir fyrir og eftir sameiningu. Uppdrátturinn verður síðar lagður fyrir skipulagsráð til samþykktar.