Sótt er um minni háttar breytingar á útliti og innra fyrirkomulagi í nýsamþykktu einbýlishúsi, m. a. er kjallari stækkaður, gluggasetningu breytt og lofthæð minnkuð, sjá erindi BN041955 samþ. 14. september 2009, á lóð nr. 104 við Haukdælabraut. Stækkun kjallara: 5,3 ferm., 5,9 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 454
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.