Sótt er um leyfi til að koma fyrir glugga á suðurhlið skrifstofuálmu og innrétta skrifstofur í stað sorpgeymslu sem verður komið fyrir í sorpgeymslu sem grafinn verður inn í landið við skammtímastæði í eigu atvinnuhúsnæðisins á lóð nr. 3-3A við Flugvallarveg. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.