Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir heitum potti með léttu skýli yfir úr gleri og stáli á svölum á bakhlið 1. hæðar hótelsins á lóð nr. 3-5 við Þingholtsstræti. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 3. desember 2010 fylgir erindinu.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi, þar með talin þau sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra, sækja verður um byggingarleyfi.