Sótt er um leyfi til að innrétta kjötbúð án vinnslu á kjöti á staðnum eða eldunar í verslunarrými 01 0101 í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 47 við Hrísateig. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.