Sótt er um leyfi til að innrétta geymslu í risi, gera stiga þar upp og koma fyrir þakgluggum í íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 31 við Reykás. Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 4. febrúar 2011, kaupsamningur vegna þakrýmis dags. 28. september 2006 og bréf hönnuðar dags. 12. apríl 2011. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.